Hvað er Orðaleikur?

Orðaleikur er námsefni fyrir börn af erlendum uppruna sem eru að læra íslensku sem annað mál en námsefnið getur nýst á fjölbreyttan hátt í leikskólastarfi og fyrir alla sem vilja læra einfaldar aðferðir til að efla orðanám barna. Námsefnið miðar að því að kenna grunnorðaforða íslenskunnar á fjölbreyttan hátt og mynda þannig krækjur til að kenna flóknari orð. Námsefnið er notendum að kostnaðarlausu.

Höfundar námsefnisins eru Rannveig Oddsdóttir, lektor við kennaradeild HA og Íris Hrönn Kristinsdóttir sérfræðingur við MSHA. Námsefnið er unnið í samstarfi við leikskólann Iðavöll á Akureyri og veturinn 2019–2020 prófuðu tveir aðrir leikskólar, Krílakot á Dalvík og Árbær í Árborg efnið í vinnu með börnum. Inga María Brynjarsdóttir myndlistamaður teiknaði myndirnar. Verkefnið er styrkt af Þróunarsjóði námsgagna, Þróunarsjóði innflytjendamála, Sprotasjóði, KEA og Norðurorku. Stefna styrkir verkefnið með hýsingu á vefnum. 


Námsefnið

Handbók: Í handbókinni er að finna fróðleik og hugmyndir varðandi orðaforðanám barna af erlendum uppruna.

Myndasafn: Myndasafnið samanstendur af nokkrum orðaþemum sem tengjast leikskólanum og daglegu lífi barna. Lögð er áhersla á orð sem leikskólabörn þurfa að kunna til að geta átt samskipti við aðra og gert sig skiljanleg.

Kennsluleiðbeiningar: Kennsluleiðbeiningar fylgja hverju orðaþema, þar koma fram hugmyndir um hvernig má vinna með orðaforðann á fjölbreyttan hátt í leikskólastarfi.

Rafbækur: Á vefnum er hægt að nálgast rafbækur með orðaforða úr námsefninu, þær er tilvalið að nota í leikskólanum til að læra íslensku og heima til að æfa móðurmálið.

Verkefnasafn: Námefninu fylgir einnig safn verkefna sem ýmist er hægt að sækja rafrænt eða prenta út af síðunni. Má þar nefna rafræn verkefni sem hægt er að nálgast í gegnum Bitsboard og Osmo smáforritin og verkefni til útprentunar sem starfsfólk leikskóla hefur útbúið. Í verkefnasafninu eru auk þess hugmyndir að því hvernig hægt er að vinna með efnið á fjölbreyttan hátt rafrænt eða með því að prenta út efni.